Skólinn BÚINN !!Andri Jóhannsson

JESS ! var í síðasta prófinu í dag ! OH ! geðveigt að vera kominn í frí.
strax eftir prófið fór ég í atvinnu viðtal. og ég fæ að mestum líkindum starfið !
fæ að vita það á morgun.
ætla samt ekki að byrja strax. ætla eigi nokkra daga fyrir sjálfan mig fyrst.

ég skrifa meira á morgun um starfið.

SaileshAndri Jóhannsson

ALGER SNILLD ! ég fór á Sailesh á föstudaginn. þetta var svo mikil djöfullsins snilld.
að sjá þetta fólk sem var dáleitt og að það gerði ALLT sem hann sagði því að gera.
það hafði enga stjórn á sér og þegar hann sagði þeim að þeir væru órangútar þá trúðu þau honum algerlega. hljóp um allan salinn og hék utan í fólki og rótaði í hárini á manni og öskruðu og hlupu yfir borð og slóu niður bjórdósir.

Ég mæli algerlega með Sailesh og kvet ykkur til að fara á hann næst þegar hann kemur til landsins.

jæja. þá er ég búinn með eitt próf. samt fimm próf eftir.

hlakka svo til að fara að vinna. langar í peninga !

Svarið könnuninni !

Skóla barniðAndri Jóhannsson

í dag var svo kallað sumar fest sem fór ekki eins og það var planað út af rigningu.

Hljómsvetin þurfti að koma inn og það voru engir loftkastalar :(

En það besta var þegar við bjuggum til barn úr blöðru, flösku og smá pappír.
barnið gerðist svo nasisti og ofurhetja. svo nýttum við barnið í 15 sekúnda langa heimildar mynd um hætturnar á að leika sér á bílastæðum. þið getið ýmindað ykkur hvernig það fór.

fleira merkilegt gerðist ekki í dag en það. (er enn að læra að blogga.)

já og vinsamlegast kjósið aftur í könnuninni. þurfti að byrja hana upp á nýtt því ég kaus "Já" þrisvar sinnum.

neyddur til að bloggaAndri Jóhannsson

ég veit ekkert hvað ég á að skrifa um núna en þegar eithver er nánast að miða bissu á þig þá gerir maður mikið til að komast úr klípuni. til dæmis að blogga.

jæja. ég ætla þá bara að segja ykkur hvernig skólinn er búinn að vera í dag.
í dag komu eithver heilsu fríkk að reyna að dæla oní okkur ávextum og orku drykkjum og reyndu að láta okkur fara út í sólina að í leiki... sem þeim tókst.

ég fattaði ekki leikinn alveg en hann hafði eithvað að gera með skrúlykil og að hlaupa á eftir örðum. svo tróðum við í okkur ávextum og orkudrykkjum eftir á.

öll þessi hollusta kom svo miklu ójafnvægi á nemendur skólans að flestir þurftu að reykja tvöfaldann skammt sinn af sígarettum til að koma aftur jafnvægi á daginn.

það var nú ekki meira sem gerðist í dag þannig að við segjum þetta bara gott í bili.

ATH: Munið að svara könnuninni

Er ég betri en þú?Andri Jóhannsson

Svarið er að sjálfsögðu "JÁ".

Ég var hvattur til að byrja að blogga af vinum mín sem eru sjálfir að blogga og því ætla ég að seta tengla hér á þeirra blogg.

Skeggi.bloggar.is
Pavol5.bloggar.is
Metalfreak.bloggar.is
Lexa.bloggar.is
Kiza.bloggar.is

ég er enn að læra á þetta en þetta verður vonandi bráðum komið í tengla.

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Könnun

Ertu komin/nn með vinnu fyrir sumarið?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Ég

  • Nafn: Andri Jóhannsson
  • Kyn: kk
  • Atvinna: of latur
  • Hjúskaparstaða: Á lausu. ;)
  • Um mig: Ég heiti Andri og er í FÁ. Ég fíla classískt rokk og smá metal.

Atburðarteljari